Bjössa Blogg
1.22.2007
  Lotusphere 2007
Jæja!

Þá er ballið byrjað. Lotusphere 2007 hófst af fullum krafti í morgun (22.01.07) með Opening General Session. Þetta var auðvitað svaka show og allt í gangi. Maðurinn sem er meðal annars frægur fyrir þessa setningu "That's one small step for (a) man, one giant leap for mankind."
Neil Armstrong kom og hélt smáræðu, virkilega gaman að sjá kallinn. Ég fékk alveg gæsahúð þegar hann var kynntur. Magnaður gaur, eldhress og þrælskemmtilegur, enda á hann afmæli 5. ágúst. Hann verður 77 í ár. Kannski ég sendi honum kort á afmælisdeginum okkar :-)

Eftir þessa skemmilegu opnun fór ég á "hands on session" þar var verið að fara yfir hvernig á að sérsníða Lotus Notes 8. En þetta var of mikið forritun fyrir mig svo ég skiptu um og fór á Domino Domain Manager "hands on session". Virkilega skemmtilegt. DDM er eitthvað sem ég tek í notkun hjá VKG-Hönnun strax og heim er komið. Núna sit ég í alvöru mjúkum amerískum stól og slappa af á milli fyrirlestra. En það að smella á annar svo ég kveð í bili.

Lotus Notes kveðja
Bjössi
 
Ummæli:
Eftir NY ferðin okkar í haust held ég að ég skilji smá út á hvað þetta gengur hjá þér en verð að segja að Lotus note heillar ekkert rosalega ;) Mér finnst að þú ættir tvímælalaust að senda Nella afmæliskort.
 
Það er greinilega rosalega gaman hjá þér ástin mín.
Ég hlakka til að fá þig heim!!

Kveðja
Steinunn (Steinó beibó)
 
Vá, magnað!! Neil Armstrong á sama afmælisdag og þú!! OG þú ert búinn að hitta hann...
Það á enginn frægur sama afmælisdag og ég... :(
En gott fyrir svona tölvulúða eins og þig að fara á svona ráðstefnu :) Var ég búin að segja þér að ég þarf að fara í forritun í skólanum... OMG!!!

En haltu áfram að hafa það gott :)

(Hey Steinunn Ósk, er ekki þá ekki babe....?!?!)

Steinunn ekki beibó
 
Skrifa ummæli





<< Heim

Söfn
júní 2004 / júlí 2004 / ágúst 2004 / október 2005 / júlí 2006 / september 2006 / október 2006 / desember 2006 / janúar 2007 / febrúar 2007 / mars 2007 / september 2007 / október 2007 / janúar 2008 / febrúar 2008 / nóvember 2008 / maí 2009 /

Links

Myndir/Fotos

  • Myndaalbúm Markús Orra

  • Emý Sara og myndirnar hennar

  • Ertu forvitinn eins og ég?